Lifðu í Núinu og gerðu allt sem þig langar til!

Eins og vin í eyðimörk internetsins!

25.08.2007 22:55:54 / Rafaello

Útrýmingarhætta??

Redheads extinct in 100 years, say scientists

"Redheads are becoming rarer and could be extinct in 100 years, according to genetic scientists.

The current National Geographic magazine reports that less than two per cent of the world's population has natural red hair, created by a mutation in northern Europe thousands of years ago.

Global intermingling, which broadens the availability of possible partners, has reduced the chances of redheads meeting and producing little redheads of their own.

I suggest you get them while you still can."

 Jahérnahér...

J.


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 22:35:55 / Rafaello

Ádeila á listamenn nútímans!


Þau eru mörg sjúk myndböndin sem finna má á Youtube og internetinu almennt en fátt kemst með tærnar þar sem þetta video hefur hælana hvað varðar sjúkleika. Hér er fast skotið á þá einstaklinga sem kjósa að fremja hina furðulegustu gjörninga í nafni listarinnar og ljóst að hér fórna menn sér fullkomlega í ádeiluna! Í aðalhlutverki er Theodór Ingi Ólafsson Stórfrændi minn og vinur.

 Gjöriði svo vel:



http://www.youtube.com/watch?v=c-Xdv06DFYg


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 11:33:28 / Rafaello

Gestur númer 50.000 var enginn annar en......

ÉG SJÁLFUR.....VÍÍÍÍÍ!!!!

Heimsóknir
Í dag: 25
Alls: 50000

Ég hef því unnið ferð til Costa del Sol....aðra leið, fyrir einn!
Happy days are coming.
Jón í fimmtudagsbullinu

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 00:16:43 / Rafaello

"En sumarið....líður allt of fljótt!"

Þannig söng Vilhjálmur Viljálmsson, einn af okkar ástsælustu dægurlagasöngvurum og þessa línu má til sanns vegar færa.  Ég nenni ekki að skrifa mikið frekar en venjulega enda vinn ég við að skrifa emaila og fl. þannig að maður er eiginlega búinn að fá nóg eftir daginn. Ég vil miklu heldur sýna ykkur nokkurar myndir af því sem á daga mína hefur drifið.

Sounds as a familiar plan from Johnny?

DSC04275 [640x480]
Fyrst ein af ömmu með sybbinn ömmustrák

DSC04346
Frændaferð í Laxá í Þing er núna orðin einn af föstu punktunum í tilveru okkar þriggja. Takið eftir hinum gullfallegu svörtu fleece buxum (innanundir vöðlur buxur) og hversu mikið þær gera fyrir okkar flottu rassa.

DSC04352
Rögnvaldur Snorri sýndi lipra takta í veiðiskapnum og nálgast nú Don Jón Gunnar óðfluga hvað varðar fjölda veiddra fiska. Þetta fór Jón 17 - Röggi 10 og nýliðinn Doddi fékk 3 stk. Ekki slæmt það. Hér má sjá Rögga kasta í Laxá á fögru sumarkvöldi. Hann stóð sig mjög vel kappinn! Frábær félagi og orðheppinn með afbrigðum.

DSC04361
"But while I'm around you'll always be second best see..!" :) Hérna er ég með 5 punda drjóla úr Mjósundi.  Þessi tók Yellow Streamer eftir Jón Braga Gunnarsson Íslandsmeistara í Fluguhnýtingum. Magnaður fiskur!

DSC04369
"Komdu aldeilis margblessaður sonny boy! Þú verður drepinn væni minn!"

DSC04298 [640x480]
Og ekki var þessi slöttólfur síðri. 5,5 pund og tók Mýsluna eftir Gylfa Kóng Kristjánsson í Hofstaðaeyju, nánar tiltekið á Ferjubakka sem er gullfallegur staður. "I'm pleased to meet you, hope you catched my name!"

DSC04318 [640x480]
Þeir frændur mínir létu ekki sitt eftir liggja í veiðinni og hér eru þeir með fallega fiska úr Hofstaðaeyju. 4 pund hjá Rögga og 2ja pundari hjá Doktornum. Takið eftir SIMMS Outfittinu á körlunum. Það er nefnilega mjög mikilvægt að vera vel búinn i veiðinni og svo skiptir miklu máli að vera töff! Þeir standast bæði prófin með sóma!

DSC04332
Einmitt. Vera töff! Töffnessið er 50% af veiðiskap. Það er staðreynd og þeir sem ekki viðurkenna það lifa í sjálfsblekkingu og vitfirringu....og hananú. Endilega kveikiði á einhverri töff tónlist á meðan þið skrollið hérna niður þessa síðu. Það eykur enn á töffnessfílinginn. Ég sting upp á gamla slagaranum "New Sensation" með INXS.

DSC04328
Sjáiði bara?  Óhemju töff!! Doktorinn klæðist þarna átfitti frá SIMMS í bak og fyrir enda undir miklum SIMMS þrýstingi frá frændum sínum. Ég heyrði því fleygt að hann hefði meira að segja keypt SIMMS naríur og brjóstahaldara handa Ally en ég sel það að sjálfsögðu ekki mikið dýrara en ég lýg því.  Doddi var hreint út sagt frábær félagi í þessari ferð og lyfti henni á enn hærra plan en fyrri ferðir án hanns voru á og voru þær þó all góðar fyrir!  Gleðin skein úr hverjum andlitsdrætti allan tímann og ég held bara að kappinn hafi notið þess í botn að vera þarna.  Ég hefi fyrir löngu gleymt því hvað hann hrýtur mikið en ætla samt að leyfa Rögga að vera með honum í herbergi á næsta ári eða panta single room. Doddi stóð sig mjög vel og ég vona að hann komi með að ári því hann er ómissandi upp frá þessu.

DSC04258
Ég fór með þessa fjölskyldu í svaðalegann einkatúr um daginn. Gaurinn sem pantaði túrinn; Mr.Hariri (annar frá vinstri) borgaði mér eina kúlu fyrir 1 og 1/2 dag af activities og gistingu í eina nótt fyrir fjölskylduna, einkaflugmanninn og nanny-ið. Jú jú....einkaflugmaðurinn var að skora hjá Nannýinu. Verði honum að því. (Nannyið er lengst til vinstri og einkaflugmaðurinn lengst til hægri. Þau eru frá Svíþjóð og Finlandi og heita Ulla Bjakk og Oj Barasta og barnið þeirra var svo ljótt að þau hentu því.

DSC04240
Svona lítur ein kúla út í USD.

DSC04256
Litla stelpan hanns hún Hailey var afar sæt þar sem hún lék sér á söndunum fyrir neðan Skóga.  Buxurnar hennar voru líka með þeim svalari.

DSC04213
"Hmm....skyldi þetta jökulvatn vera mjög kalt?"

DSC04217
"Nei, þetta sleppur! Ég tek smá sundsprett."

DSC04246
Ég skellti mér í smá bleikjuveiði í Eyjafjarðará. Þessi gein við Króknum en fékk að lifa. Þær eru svo fáar eftir í ánni að það er bannað að taka mikið af þeim.

DSC04252
Svo veiddi ég þann minnsta djöfulsins fisk sem ég hef fengið á færi. Ca 3ja sentimetra langa Bleikju. "Drullaðu þér af flugunni minni helv..."

DSC04144
Svo eru þessi komin í bæinn og búin að kaupa sér kaffihúsið Café Segafredo. Já, Alice sæta og Steini eru flutt frá Álaborg til Reykjavíkur. Hver hefði trúað því? Gott fólk þarna á ferðinni og ég mæli með því að þið fáið ykkur eins og einn kaffibolla hjá þeim með vöfflu og sultu. Namm!

Páll og Kristján
Endum þessa ferð á NASA núna um síðustu helgi þar sem Kristján Helgi Benjamínsson átti eitthvað vantalað við Pál Homo Hjálmtýrsson.  MAGNAÐ ball og Páll er Kóngurinn. Ekki spurning!

Comments....anyone?

Yegshemash!

 

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 21:54:57 / Rafaello

Ég er....

.....einn ríkasti snauðkýfingur í heimi!:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 19:47:53 / Rafaello

...Gone fishing!

Kjerlinn er kominn í nokkurra daga langþráð frí og farinn að veiða.

Takk fyrir og bless!


(Eins og sjá má er undirritaður orðinn allt of þreytulegur og bráðnauðsynlegt fyrir sálartetrið að fara norður að veiða)

 

J


» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 162455
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 11 nóvember
Dagsetning
21. mars 2010
Textabox